Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Þriðjudagur 8. janúar 2002 kl. 16:18

Ný sorpeyðingarstöð og haugar í matsáætlun

Ný matsáætlun hefur verið gerð vegna byggingar nýrrar móttöku-, flokkunar- og sorpbrennslustöðvar á lóð Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja á Iðnaðarsvæði við Helguvík og gerð nýrra öskuhauga á Stafnesi-Rosmhvalanesi.Gerð var matsáætlun í júlí árið 2000 en þar var gert ráð fyrir því að móttöku-, flokkunar- og sorpbrennslustöðin yrði staðsett á lóð Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja við Hafnarveg. Fallið hefur verið frá þeirri staðsetningu en engar breytingar hafa verið gerðar á tilhögun og staðsetningu urðunarsvæðis.
Vegna breyttrar staðsetningar brennslu er gert fáð fyrir að byggja um 1,7 km langan tengiveg frá Stafnesvegi að urðunarsvæðinu.

Vegna þessara breytinga hefur samkvæmt ósk Skipulagsstofnunar verið gerð ný matsáætlun sem tekur mið af þessu.

Frestur til að skila inn athugasemdum til Skipulagsstofnunar er 14. janúar 2002.

Markmið framkvæmdarinnar er að endurnýja sorpförgunarkerfi Sorpeyðingarstöðvar Suðurnesja sf. Einnig veriður tekin upp aukin flokkun á sorpi sem stuðlar að endurvinnslu og endurnýtingu úrgangs.

Sjá frekari upplýsingar á vef Sorpeyðingastöðvar Suðurnesja.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024