HSS
HSS

Fréttir

Fimmtudagur 31. maí 2001 kl. 09:04

Ný sorpbrennslustöð í Helguvík árið 2003

Áformað er að ný og fullkomin sorpbrennslustöð verði tekin í notkun í Helguvík árið 2003. Sorpeyðingarstöð Suðurnesja sf., f.h. sveitarfélaganna á Suðurnesjum, og Varnarliðið undirrituðu samning í Eldborg í Svartsengi 23. maí sl. um heildarlausn á móttöku og förgun á sorpi.

Samningurinn felur í sér uppbyggingu og rekstur nýrrar móttöku- og sorpbrennslustöðvar sem og urðunarstað fyrir ösku. Varnarliðið greiðir 2.860.000 bandaríkjadali til fjárfestingar og greiðir jafnframt rekstrarkostnað með sama hætti og sveitarfélögin.
„Áformað er að reisa nýju stöðina á nýrri lóð við Berghólabraut á iðnaðarsvæðinu í Helguvík. Þar verður byggð móttöku- og flokkunarstöð ásamt sorpbrennslu með orkuendurvinnslu með a.m.k. með 6.000 tonna afköstum á ári. Lögð verður áhersla á endurnýtingu og endurvinnslu í öllu sorpferlinu þannig að stóraukin verður flokkun og endurnýting svo að u.þ.b. 80 % endurvinnsluhlutfall náist. Brennslustöðin verður búin fullkomnum reykhreinsibúnaði og mun uppfylla ítrustu umhverfiskröfur sem og kröfur um að sorpi frá varnarsvæðunum sé eytt með brennslu eins og reglur gera ráð fyrir. Áformað er að stöðin verði tekin í notkun á árinu 2003“, segir Guðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Sorpeyðingarstöð Suðurnesja er sameignarfélag sveitarfélaganna á svæðinu og hefur rekið sorpbrennslu frá árinu 1979. Vegna hertra krafna um útblástur frá sorpbrennslustöðvum rann starfsleyfi stöðvarinnar út í lok ársins 2000 og hefur hún verið rekin á bráðabirgðaleyfi síðan. Vegna aldurs brennslustöðvarinnar svarar ekki kostnaði að breyta henni á þann veg að hún uppfylli framtíðarkröfur.
„Gert er ráð fyrir að hin nýja lausn leysi sorpmál sveitarfélaganna á Suðurnesjunum sem og Varnarliðsins til nokkurrar framtíðar þar sem bestu fáanlegri tækni verður beitt og sveitarfélögin á Suðurnesjum og Varnarliðið og Suðurnesin verði í fararbroddi umhverfisvænnar sorpeyðingar í landinu“, segir Guðjón.
Bílakjarninn
Bílakjarninn