Ný slökkvistöð Brunavarna Suðurnesja vígð
Slökkvistöð Brunavarna Suðurnesja hefur verið formlega vígð. Íbúum Suðurnesja var boðið að skoða slökkvistöðina 6. maí og nýttu fjölmargir tækifærið að skoða húsakost og tækjabúnað slökkviliðsins. Brunavarnir Suðurnesja fluttu inn í nýju húsakynnin fyrir nokkrum misserum en vegna heimsfaraldurs og strangra sóttvarna á slökkvistöðinni hefur ekki verið hægt að fagna flutningum í nýja húsið fyrr en nú.
Séra Erla Guðmundsdóttir, sóknarprestur í Keflavíkursókn, blessaði húsið og starfsemina. Hún afhenti slökkviliðsstjóranum, Jóni Guðlaugssyni, bæn slökkviliðsmannsins við sama tækifæri. Jón verður sjötugur á þessu ári en við vígslu hússins lýsti Friðjón Einarsson, stjórnarformaður Brunavarna Suðurnesja, því að ráðningarsamningur við Jón hefur verið framlengdur til ársins 2024. Það ár mun Jón fagna því að hafa starfað sem slökkviliðsmaður í hálfa öld.
Meðfylgjandi myndir voru teknar við vígslu stöðvarinnar. Fleiri myndir í myndasafni eru hér að neðan frá víglsunni og í opnu húsi þar sem bæjarbúum var boðið að koma.
Friðjón Einarsson, stjórnarformaður Brunavarna Suðurnesja og Jón Guðlaugsson slökkviliðsstjóri. Hann er 70 ára á þessu ári en mun starfa sem slökkviliðsstjóri í tvö ár til viðbótar og láta af störfum 2024 þegar hann hefur starfað sem slökkviliðsmaður í 50 ár.
Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja.
Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, var viðstaddur vígsluathöfnina.
Örn Bergsteinsson og Ellert Eiríksson, báðir eldri slökkviliðs-gaurar, mættu í fögnuðinn.