Ný reiðhöll í Grindavík komin vel á veg
Framkvæmdir við nýja reiðhöll hestamannafélagsins Brimfaxa í Hópsheiði í Grindavík eru komnar vel á veg. Þær hófust í febrúar og nú er langt komið með að loka húsinu. Frá þessu er greint á Grindavik.is
Samkvæmt samkomulagi Grindavíkurbæjar og Brimfaxa leggur bærinn 50 milljónir króna til byggingar reiðhallarinnar. Þessi nýja höll mun bylta starfsemi Brimfaxa. Verktaki er HH smíði.