Ný og glæsileg aðstaða fyrir hljómsveitir
Steypan, nýtt húsnæði fyrir ungar og upprennandi hljómsveitir í Reykjanesbæ, var formlega tekin í gagnið í gær. Hljómsveitahúsnæði hefur lengi verið af skornum skammti í Reykjanesbæ, en Sparisjóðurinn í Keflavík brást vel við óskum 88 Hússins um að fá að nota húsnæðið við gömlu steypustöðina að Fitjum. Þar eru nú tvö herbergi fyrir hljómsveitir.
Síðustu vikur hafa meðllimir hljómsveitanna Ritz og Gun Shy unnið að því að koma húsnæðinu í stand og var ekki annað að sjá en að þeim hafi tekist vel til.
Við athöfnina í gær afhenti Árni Sigfússon, bæjarstjóri, hljómsveitarmeðlimum forláta grip sem nemendur á starfsbraut í FS gerðu af þessu tilefni.
Að lokinni athöfn tóku hljómsveitirnar lagið saman fyrir gesti og loks var boðið upp á kaffi og kleinur.
Í samtali við Víkurfréttir sögðu meðlimir hljómsveitanna, sem eru á aldrinum 16-17 ára, að mikill munur væri á að vera með aðstöðu í Steypunni og að vera í heimahúsi eins og þeir hafa verið hingað til. „Það var alltaf verið að kvarta yfir hávaða og svoleiðis, en hér erum við útaf fyrir okkur. Aðstaðan hérna er flott og við erum með ísskáp og samlokugrill. Það er toppurinn.“ sögðu þessir hressu hljómsveitarstrákar og hlógu.
Hafþór Barði Birgisson, forstöðumaður 88 Hússins, sagði að alltaf væri þörf á æfingahúsnæði og vil hann benda þeim sem hafa slíkt húsnæði á lausu á að hafa samband.
VF-myndir/Þorgils: 1: Bjarni, söngvari Ritz, í nettri sveiflu. 2: Geirmundur Kristinsson, Sparisjóðsstjóri ásamt fulltrúum drengjanna sem leika í húsinu.