Ný menningarmiðstöð fyrir ungt fólk
Komið hefur til umræðu að leggja félagsmiðstöðina Fjörheima niður í núverandi mynd en samkvæmt gildandi lögum ber hver grunnskóli nú ábyrgð á framkvæmd og skipulagi tómstunda- og félagsstarfi nemenda skólans.
Þá er gert ráð fyrir að menningarmiðstöð verði komið á fót fyrir ungt fólk á aldrinum 16-25 ára og gætu grunnskólarnir gert samstarfssamninga við nýju menningarmiðstöðina.
Skóla- og fræðsluráð Reykjanesbæjar tók málið til umfjöllunar á fundi sínum 1. febrúar sl. og fagnaði framkomnum hugmyndum. Ráðið telur skólana hins vegar ekki hafa fjárhagslega getu til að mæta auknum kostnaði við tómstundamál og fer fram á að sú hlið málsins verði skoðuð sérstaklega fyrir endurskoðun núverandi fjárhagsáætlunar.