Ný líkamsræktarstöð opnar í Grindavík
Allt útlit var fyrir að Grindvíkingar yrðu án líkamsræktarstövar í bæjarfélaginu um óákveðinn tíma en eina líkamsræktarstöðin í Grindavík, Orkubúið, hætti starfsemi um áramót. Bæjarstjórn Grindavíkur auglýsti því eftir samstarfi við áhugasama aðila um rekstur líkamsræktar í Sundmiðstöð Grindavíkur þann 1. desemer síðastliðinn og barst eitt tilboð. Það var frá Actic Ísland ehf. (Nautilus) og samþykkti bæjarráð að ganga til samninga við fyrirtækið á grundvelli fyrirliggjandi tillögu að leigusamningi með breytingum sem ræddar voru á fundinum og felur bæjarstjóra að undirrita og leggja fyrir bæjarstjórn til staðfestingar.
Áætlað er að líkamsræktarstöðin opni í austurenda sundmiðstöðvarinnar þar sem ljósabekkur og sauna eru í dag. Þeirri aðstöðu verður breytt og skapað pláss fyrir líkamsræktaraðstöðu og er reiknað með að opna um miðjan janúar.
Actic á Íslandi er hluti af Actic gym&bad sem er stærsta líkamsræktarkeðja í Skandinavíu með á annað hundrað stöðvar. Fyrsta Actic heilsuræktin hér á landi opnaði í sundlaug Kópavogs í september árið 1997. Í dag starfrækir fyrirtækið stöðvar í Hafnarfirði, Salalaug í Kópavogi, Álftanesi, Vestmannaeyjum, Vogum, Selfossi, Hellu og Vík í Mýrdal. Allar stöðvarnar eru búnar fullkomnustu Nautilus tækjunum ásamt fjölda þrektækja og lausra lóða.
Fjallað var um málið í Víkurfréttum um miðjan desember síðastliðinn.