Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Ný hringtorg í mótun ofan Reykjanesbæjar
Þriðjudagur 8. ágúst 2017 kl. 06:00

Ný hringtorg í mótun ofan Reykjanesbæjar

Framkvæmdum við tvö hringtorg á Reykjanesbraut ofan Reykjanesbæjar miðar vel. Verklok eru áætluð um miðjan september. Hringtorgin eru annars vegar á mótum Aðalgötu og Reykjanesbrautar og hins vegar á mótum Þjóðbrautar og Reykjanesbrautar. 

Útboð fór fram fyrr í sumar og var verktakafyrirtækið Ístak lægstbjóðandi.
 
Útboð Ístaks hljóðaði upp á rúmar tvö hundruð og fimmtán milljónir króna fyrir bæði hringtorgin. Framkvæmdir hefjast í næstu viku og eru áætluð verklok þann 15. september næstkomandi.

Ökuhraði á framkvæmdasvæðinu var færður niður í 50 km á klukkustund á meðan á framkvæmdum stendur og þá hefur vinstri beygja af Þjóðbraut og Aðalgötu verið bönnuð inn á Reykjanesbraut. Nokkur umferðaróhöpp hafa orðið á framkvæmdasvæðinu en engin alvarleg slys.
 
Hringtorgin eru hönnuð sem tvöföld hringtorg og verður ytri hringur fyrst tekinn í notkun og er þá hægt að stækka hringtorgið með innri hring þegar farið verður í tvöföldun Reykjanesbrautar.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024