Mánudagur 31. mars 2003 kl. 15:40
Ný háspennulína á Reykjanes

Skipulagsstofnun hefur fallist á lagningu 14 km langrar háspennulínu frá tengivirki við jarðgufustöð á Reykjanesi að nýrri aðveitustöð við háspennulínuna sem liggur frá Svartsengi að Fitjum norðan við orkuverið. Möstur verða 43 og um það bil 350 metra bil á milli þeirra. Lögð verður 10 km vegslóð með línuleiðinni. Gert er ráð fyrir að nota 40.000 rúmmetra efnis úr opnum námum í Stapafelli, Rauðamel og Melhól, segir á vef Ruv.is.