Ný frétt: Mikill eldur í bílskúr í Garðinum
Eldur kom upp í bílskúr við Sunnubraut í Garði um kllukkan tíu í kvöld. Mikill eldur blossaði upp og hefur náð að teygja sig yfir í íbúðarhúsið sem skúrinn stendur við.
Þegar útkallið kom hjá Brunavörnum Suðurnesja voru aðeins tveir starfsmenn á vakt á slökkviðstöðinni í Keflavík. Þurfti því að kalla á menn á bakvakt. Þeir standa nú vaktina í Garðinum.
Hilmar Bragi myndatöku- og fréttamaður VF er á staðnum og sendi þessar myndir og einnig var hægt að sjá „lifandi“ video frá vettvangi á Facebook síðu VF.
Hér er slóð á videoið frá vettvangi.
Þessa mynd tók Einar Guðberg frá Pósthússtræti í Keflavík. Reykurinn frá brunanum í Garði sést vel. Snæfells-jökullinn „logar“.