Ný fráveituhreinsistöð við Náströnd? - Myndskeið
Umhverfis- og skipulagsráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt heimild til að vinna tillögu að deiliskipulagi vegna nýrrar fráveituhreinsistöðvar við Náströnd í Reykjanesbæ. Umrætt svæði er neðan Ægisgötu á svæði aftan við Hafnargötu 29–35.
Fyrirhuguð hreinsistöð er á svæði þar sem gert er ráð fyrir slíkri starfssemi í gildandi aðalskipulagi. Við endurskoðun aðalskipulags sem nú er í vinnslu er einnig gert ráð fyrir þessari staðsetningu. Ný hreinsistöð er ekki matsskyld. Deiliskipulagið tekur til svæðisins utan Ægisgötu í samræmi við þá tillögu sem fyrir liggur og unnin er í samstarfi við EFLU verkfræðistofu, Landslag og Reykjanesbæ.