NÝ CO-CARTBRAUT Í SANDGERÐI
Skipulags- og byggingarnefnd Sandgerðisbæjar tók nýverið fyrir á fundi sínum, erindi Reis ehf. (Stefáns Guðmundssonar) um lóð fyrir co-cartbraut í landi Sandgerðisbæjar. Í fundargerð nefndarinnar kemur fram, að rétt sé að skoða svæðið milli Sandgerðisvegar og Reykjanesbrautar, m.t.t. hvort það henti fyrir slíka starfsemi. Nefndin telur einnig nauðsynlegt að hraða vinnslu málsins svo niðurstaða náist sem fyrst.