Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Ný aðstaða til rannsókna á smitsjúkdómum í fiski við Fræðasetrið í Sandgerði
Mánudagur 24. janúar 2011 kl. 09:14

Ný aðstaða til rannsókna á smitsjúkdómum í fiski við Fræðasetrið í Sandgerði

Ný og fullkomin aðstað til rannsókna á smitsjúkdómum í fiski verður fromlega tekin í notkun í dag í Fræðasetrinu í Sandgerði kl. 14 í dag. Samstarfsaðilar verkefnisins eru Tilraunastöð HÍ í meinafræðum að Keldum og Sandgerðisbær. Undirbúningur og framkvæmdir hafa staðið yfir í um það bil eitt ár.


Sjúkdómar eru mikið vandamál í fiskeldi á Íslandi sem og annars staðar í heiminum. Árið 2009 tók Landsamband fiskeldistöðva saman ítarlega skýrslu um stöðu fiskeldis á Íslandi. Þar var ályktað að rannsóknir á sjúkdómum og vörunum gegn þeim væri eitt allra brýnasta verkefnið í framtíðaruppbyggingu fiskelsis á Íslendis. Það er því mikið gleðiefni að loks sé komin góð aðstaða til smittilrauna með fisk. Skortur á henni hefur komið í veg fyrir að hægt væri að sinna brýnum verkefnum á þessu sviði.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024



Í hinu nýja rannsóknarrými er unnt að vinna að tveimur óháðum rannsóknum í senn. Í rýminu eru 23 ker 170 til 1000 lítra. Hægt er að stilla bæði hita (0 – 20°C) og seltu (0-34‰) eldisvatnsins. Tvö rannsóknaverkefni, undir stjórn vísindamanna á Keldum, verða sett af stað næstu daga.


Innlendum og erlendum vísindamönnum gefst nú kostur á að stunda rannsóknir í hinni nýju aðstöðu, og nýta hina fjölbreittu aðstöðu sem er í húsnæðinu en þar eru fyrir Botndýraransóknastöðin . Náttúrustofa Reykjanes. Háskólasetur Suðurnesja fjöldi doktors og masters ritgerða hafa verið skrifaðar eftir rannsóknavinnu hjá þeim stofnunum sem eru í húsinu. Fjölmargir aðilar hafa komið að fjármögnun verksins, Menntamálaráðuneytið, Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið, Landssamband fiskeldisstöðva, Tilraunastöð HÍ í
meinafræði að Keldum, Fræðasetrið í Sandgerði og Sandgerðisbær. Auk þessa lagði Íslandsbleikja á Stað í Grindavík til fóðrara.