Numinn á brott, pyntaður og neyddur til þjófnaðar
Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar nú mál sem varðar ætlaða frelsissviptingu manns, líkamsmeiðingar, hótanir, þjófnaði o.fl. Rannsókn málsins hófst þann 9. apríl síðastliðinn en þá var lögregla kvödd á vettvang vegna þjófnaðar á verkfærakistu sem eigandinn hafði lagt frá sér á bílastæði við leikskóla í Reykjanesbæ. Sást til þjófanna og bifreiðar þeirra og tókst lögreglu að finna bifreiðina skömmu síðar ásamt þýfinu.
Við rannsókn þjófnaðarmálsins komu fram upplýsingar um að einn þátttakenda hefði verið numinn á brott með valdi frá heimili sínu nóttina áður, haldið nauðugum í heimahúsi um nóttina og sætt þar hótunum, ýmsum líkamsmeiðingum og pyntingum af hálfu fimm aðila. Manninum var haldið áfram nauðugum fram eftir degi og mun meðal annars hafa verið þvingaður til að stela verkfærakistunni sem áður er vikið að. Ástæða verknaðarins mun hafa verið innheimta á fíkniefnaskuld.
Sex menn voru handteknir vegna rannsóknar málsins og húsleitir gerðar á nokkrum stöðum. Við húsleitirnar fannst meðal annars ætlað þýfi. Þrír mannanna voru úrskurðaðir í gæsluvarðahald allt til 16. apríl en þremur var sleppt að loknum yfirheyrslum. Gæsluvarðhaldi var síðan framlengt um viku yfir einum mannanna, einn hóf afplánun refsingar og einum hefur verið sleppt, samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Suðurnesjum.