Númer klippt af þrettán bifreiðum
	Lögreglan á Suðurnesjum hefur fjarlægt skráningarmerki af þrettán bifreiðum á síðustu dögum þar sem þær voru ótryggðar, óskoðaðar eða hvoru tveggja.  Þá hafði lögregla afskipti af ökumanni sem var á ferðinni í fyrrakvöld á bifreið sem var án allra skráningarmerkja. Hann var að sjálfsögðu stöðvaður og reyndist hann vera án ökuréttinda. Hafði lögregla áður haft afskipti af sama aðila vegna ítrekaðra brota á umferðarlögum.


 
	
			


 
						 
						 
						 
						 
						 
						

 
				 
				 
				 
				 
				
 
				 
				 
				 
				