Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Nú segjum við stopp - borgarafundir vegna tíðra umferðarslysa
Miðvikudagur 13. september 2006 kl. 10:14

Nú segjum við stopp - borgarafundir vegna tíðra umferðarslysa

Efnt er til sjö borgarafunda víðsvegar um landið á morgun,  fimmtudaginn 14. september en tilefnið er alda umferðarslysa að undanförnu. Yfirskrift fundanna er: Nú segjum við stopp.  Í Reykjanesbæ verður fundurinn haldinn í Stapa en allir hefjast fundirnir samtímis klukkan 17:15

Borgarafundirnir verða haldnir í Reykjavík, Reykjanesbæ, á Selfossi, Egilsstöðum, Akureyri, Ísafirði og í Borgarnesi. Markmið þeirra er að hvetja almenning í landinu til þess að hugleiða þær fórnir sem umferðin krefst og drúpa um leið höfði í virðingu við þá sem látið hafa lífið í umferðarslysum á árinu.

Sturla Böðvarsson samgönguráðherra flytur ávarp á fundinum í Reykjavík. Sama ávarp verður lesið á hinum fundunum og verða þeir allir með sama sniði. Auk ávarps ráðherra verða flutt stutt erindi fólks sem hefur upplifað það áfall og þá sorg sem fylgir alvarlegum slysum í umferðinni og lögreglu- eða sjúkraflutningamenn munu lýsa reynslu sinni af vettvangi. Þá verður flutt tónlist og fundunum lýkur með bæn.

Á fundunum verður kynnt vefsíða þar sem unnt er að skrá nafn sitt undir heit um bætta hegðan í umferðinni og í Reykjavík mun samgönguráðherra skrifa nafn sitt á síðuna svo og fulltrúar annarra stjórnmálaflokka.

Í Reykjavík fer fundurinn fram í Hallgrímskirkju, í Borgarnesi í Borgarneskirkju, í Ísafjarðarbæ í Ísafjarðarkirkju, á Akureyri í Akureyrarkirkju, á Egilsstöðum í sal Menntaskólans, á Selfossi í sal Fjölbrautaskólans og í Reykjanesbæ í Stapanum. Átakið er skipulagt af samgönguráðuneyti og Umferðarstofu í samstarfi við fjölda félagasamtaka, ráðuneyta og stofnana sem láta sig umferðaröryggi varða.

Nítján manns hafa látist í umferðarslysum það sem af er árinu, jafnmargir og allt síðasta ár. Í ár er meira um ofsaakstur, kappakstur og vítavert gáleysi en áður og í fimm tilvikum notuðu ökumenn eða farþegar ekki bílbelti.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024