Bygg
Bygg

Fréttir

Nú er það blautt!
Föstudagur 13. janúar 2012 kl. 09:08

Nú er það blautt!

Suðaustan 10-18 m/s og rigning eða súld við Faxaflóa, en dregur úr vindi kvöld. Hiti 3 til 7 stig. Snýst í suðvestan 3-8 með slydduéljum á morgun og kólnar.

Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Suðaustan 10-15 m/s og rigning eða súld, en dregur heldur úr vindi kvöld. Hiti 4 til 7 stig. Snýst í suðvestan 3-8 með slydduéljum á morgun og kólnar.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á sunnudag:
Suðlæg átt, 5-10 m/s og stöku slydduél eða él, en léttskýjað á N- og A-landi. Suðaustan 10-15 vestast um kvöldið og rigning eða slydda. Frost 1 til 8 stig og kaldast í innsveitum NA-lands, en hiti 0 til 4 stig við S- og V-ströndina.

Á mánudag:
Suðaustlæg átt og rigning með köflum eða sums staðar slydda. Hiti 0 til 6 stig. Þurrt að kalla fyrir norðan og hiti um og undir frostmarki.

Á þriðjudag:
Suðvestanátt með éljagangi. Dálítil snjókoma á NA- og A-landi framan af degi, en léttir til þar seinnipartinn. Kólnandi veður.

Á miðvikudag:
Suðvestanátt og él, en léttskýjað NA- og A-lands. Frost 0 til 8 stig.

Á fimmtudag:
Útlit fyrir að snúist til norðanáttar með snjókomu fyrir norðan, en birtir til syðra.