Nú er Heilsu- og forvarnarvika
Samvinna - Þátttaka - Árangur
Þessa vikuna stendur yfir Heilsu- og forvarnarvika í Reykjanesbæ. Þetta er í fimmta skiptið sem heilsu og forvarnarvikan er haldin undir kjörorðinu Samvinna-Þátttaka-Árangur. Markmiðið með heilsu-og forvarnarvikunni er að draga úr þeim áhættuþáttum sem einstaklingurinn getur staðið frammi fyrir á lífsleiðinni og hlúa að verndandi þáttum með þátttöku allra bæjarbúa.
Fjölbreytt dagskrá verður alla vikuna og ýmis tilboð í gangi í fyrirtækjum heilsutengd. Bæjarbúar eru hvattir til að kynna sér dagskrána nánar hér á heimasíðu Reykjanesbæjar.