Laugardagur 5. febrúar 2005 kl. 11:04
Nóttin róleg hjá lögreglu
Einn ökumaður var stöðvaður í nótt í Keflavík grunaður um ölvun við akstur. Tveir ökumenn til viðbótar voru stöðvaðir fyrir hraðakstur á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund. Að öðru leyti var nóttin róleg að sögn varðstjóra hjá lögreglunni í Keflavík.