Laugardagur 10. júlí 2004 kl. 10:11
Nóttin mjög róleg hjá lögreglunni

Nóttin var mjög róleg hjá lögreglunni í Keflavík. Lögreglumenn höfðu einungis afskipti af nokkrum ökumönnum vegna umferðarlagabrota. Guðmundur Sæmundsson varðstjóri lögreglunnar í Keflavík sagði ekkert markvert hafa gerst á næturvaktinni og sagði hann ekki ólíklegt að fólk hefði brugðið sér úr bænum yfir helgina. Á Sauðárkróki fer Landsmót UMFÍ fram um helgina og á Akranesi eru Írskir dagar haldnir.