Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Norræn strandhreinsun fer fram á Reykjanesi þann 5. maí 2018
Miðvikudagur 2. maí 2018 kl. 14:58

Norræn strandhreinsun fer fram á Reykjanesi þann 5. maí 2018

Laugardaginn 5. maí fer fram Norræn strandhreinsun og á Íslandi er fókusinn settur á Reykjanesið. Að þessum viðburði standa Landvernd og Blái herinn ásamt umhverfisverndarsamtökum á öllum Norðurlöndum. Hópar um allt land taka þátt í átakinu Hreinsum Ísland.

Í Hreinsum Ísland átakinu, sem nú er í gangi, eru m.a. hreinsaðar strandlengjur í öllum sveitarfélögum á Reykjanesi og þann 5. maí fer samtímis fram strandhreinsun á öllum Norðurlöndunum. Auk fjölda sjálfboðaliða mun Umhverfis- og auðlindaráðherra Guðmundur Ingi Guðbrandsson taka þátt í strandhreinsun í Þórkötlustaðafjöru kl 13:00.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Þann 5. maí verður boðið uppá tvær skipulagðar hreinsanir á Reykjanesinu sem opnar eru öllum. Í Garðskagafjöru er fjölskyldufólk sérstaklega boðið velkomið og svo verður einnig hreinsað í Þórkötlustaðafjöru austan við Grindavík en sú fjara er grýtt. Hreinsanir hefjast á báðum stöðum kl. 13. og svo er öllum boðið kl. 16 í lokahóf með léttum veitingum í Gjánni við íþróttamiðstöð Grindavíkur.

#hreinsumisland #landvernd #hreinthaf

Plastmengun stærsta áskorun nútímans
Margir halda því fram að Ísland sé hreinasta land í heimi. Vissulega er loftið hreint og vatnið gott en þrátt fyrir það notar hver Íslendingur að meðaltali 40 kíló af plastumbúðum á ári. Aðeins lítill hluti skilar sér til endurvinnslu eða endurnýtingar og er meiri hluti þess annaðhvort grafinn í jörðu og urðaður eða endar í hafinu. Plastmengun í hafi er ein stærsta áskorun nútímans í umhverfismálum. Árlega eru 350 milljón tonn af plasti framleidd í heimum en af þeim enda um 8 milljón tonn af plasti í hafinu. Samkvæmt tölum frá Umhverfisstofunun Sameinuðu þjóðanna koma 80% þess plasts af landi og 20% frá starfsemi á sjó. Plastið eyðist ekki heldur brotnar niður í örplast sem sogar að sér eiturefni í sjónum. Plast getur vafist utan um dýr, heft hreyfingar þeirra og kyrkt en einnig geta eiturefni í plastinu, eða sem berast með plastinu skaðað dýrin. Plast getur þar að auki fyllt meltingarfærin svo að dýrin telji sig vera södd en enda á því að hljóta innvortis sár eða svelta til bana.
Ógrynni plastagna renna með skólpi og rigningavatni út í sjó og og má meðal annars rekja uppruna þeirra til dekkja, fatnaðar úr gerviefnum, málningar og snyrtivara.

Heilbrigt haf mönnum lífsnauðsynlegt
Landið okkar er umkringt hafi og tengir það okkur við önnur lönd. Það mótar landið okkar og hefur gríðarlega mikil áhrif á loftslag og veður. Hafið gerir jörðina lífvænlega og er tilvera okkar manna háð heilbrigði hafsins. Mikilvægt er fyrir smáa þjóð sem byggir afkomu sína að hluta til á sjávarútvegi að bera skynbragð á víðtæk áhrif hafsins á líf okkar.

Dagskrá 5. maí
Norræn strandhreinsun. Hreinsað verður samtímis á öllum norðurlöndum og taka meðal annars öll sveitarfélög á Reykjanesi þátt.
Viðburður hefst kl. 13:00 í Garðskagafjöru og Þórkötlustaðafjöru. Umhverfis- og auðlindaráðherra Guðmundur Ingi Guðbrandsson mun taka þátt í strandhreinsun í Þórkötlustaðafjöru.
Lokahóf hefst kl 16:00 í Gjánni við Íþróttamiðstöð Grindavíkur
Lok kl. 17:00

Hvað: Hreinsum Ísland og Norræn strandhreinsun á Reykjanesinu
Hvar: í Garðskagafjöru og Þórkötlustaðafjöru, austan við Grindavík
Hvenær: Laugardaginn 5. maí kl. 13:00