Noregskonungur í Víkingaheimum
Haraldur Noregskonungur kom í óvænta heimsókn í Víkingaheima í gær. Þar var hann í fylgd Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands. Haraldur hafði stutta viðkomu á Íslandi á leið sinni til Bandaríkjanna.
Forseti sýndi konungi víkingaskipið Íslending sem varðveitt er í safninu í Reykjanesbæ og fræddi Gunnar Marel Eggertsson, sem smíðaði skipið og stjórnaði siglingu þess árið 2000, konung um skipið og ferðina sem farin var frá Íslandi til Grænlands, Kanada og Bandaríkjanna fyrir fimmtán árum.
Myndir: Oddgeir Karlsson
Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar heilsar Haraldi Noregskonungi.
Gunnar Marel fræddi Noregskonung um Ameríkusiglinguna.
Ólafur Ragnar, Haraldur og Gunnar Marel.