Fréttir

  • Norðurljósaveislan verður í kvöld
  • Norðurljósaveislan verður í kvöld
    Svona er ljósaspáin fyrir kvöldið. Aðstæður gerast vart betri. Hvítur litur á kortinu þýðir heiðskýrt, sá græni sýnir ský.
Miðvikudagur 28. september 2016 kl. 09:56

Norðurljósaveislan verður í kvöld

- slökkva á lýsingu á Garðskaga til að auka norðurljósaupplifunina

Mikilli norðurljósavirkni er spáð í kvöld og til að auka á gleðina þá verður heiðskírt veður. Norðurljósin voru hreint mögnuð í gærkvöldi en nú eru áhugasamir að búa sig undir enn meiri ljósaveislu þar sem spár gera ráð fyrir meiri ljósavirkni en í gærkvöldi.

Fjölmargir eru að gera tilraunir með að mynda norðurljós og hafa náð mismunandi tökum á verkefninu. Ellert Grétarsson, náttúruljósmyndari, hefur tekið saman ágætar upplýsingar um norðurljósaljósmyndun sem má sjá hér.

Samkvæmt heimildum Víkurfrétta verður slökkt á götulýsingu á Garðskaga í kvöld og því tilvalið að koma þangað og njóta norðurljósadýrðarinnar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024