Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Norðurál skuldar lóðaleigu í Helguvík
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
föstudaginn 23. apríl 2021 kl. 07:23

Norðurál skuldar lóðaleigu í Helguvík

Norðurál Helguvík ehf. hefur ekki staðið við ákvæði samninga varðandi lóðaleigu ársins 2021. Reykjaneshöfn leigir Norðurál Helguvík ehf. lóðirnar Stakksbraut 1 í Suðurnesjabæ og Stakksbraut 4 í Reykjanesbæ með sérstökum samningum þar um í tengslum við áður fyrirhugaða álversuppbygginu á svæðinu. Málið var tekið fyrir á síðasta fundi hafnarstjórnar Reykjaneshafnar þar sem hafnarstjóri gerði grein fyrir samskiptum sem hafa verið milli aðila.

„Norðurál Helguvík ehf. leigir af Reykjaneshöfn lóðina Stakksbraut 1 í Suðurnesjabæ og lóðina Stakksbraut 4 í Reykjanesbæ og skal samkvæmt samningum greiða árlega lóðaleigu þeirra í síðasta lagi 31. janúar viðkomandi ár. Í dag er 15. apríl eða 74. dagur frá eindaga greiðslunnar sem hefur enn ekki borist Reykjaneshöfn. Stjórn Reykjaneshafnar harmar að Norðurál Helguvík ehf. skuli ekki virða samningsskyldur sínar með greiðslu lóðaleigu ársins 2021 og felur hafnarstjóra að undirbúa þær ráðstafanir sem til þarf til að gæta hagsmuna hafnarinnar,“ segir í afgreiðslu hafnarstjórnar frá 15. apríl síðastliðnum en afgreiðslan var samþykkt samhljóða.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024