Föstudagur 18. október 2002 kl. 13:38
Norðmenn óttast enn Guðrúnu Gísladóttur KE

Norsku mengunarvarnirnar lýsa áfram fullri ábyrgð á hendur útgerðar Guðrúnar Gísladóttur, vegna hættu á mengun frá skipinu þótt það hafi nú verið selt öðrum. Frestur sem gefinn var til að dæla olíu úr skipinu er liðinn en fulltrúi frá mengunarvörnunum er nú staddur hér á landi til að kynna sér hvort áætlanir um að lyfta skipinu af hafsbotni séu raunhæfar. Eins og fram hefur komið í fréttum hefur fyrirtækið Íshús Njarðvíkur keypt Guðrúnu Gísladóttur af útgerðinni og ætlar að lyfta því af hafsbotni og koma því aftur á veiðar sem fyrst. Skipið hefur legið á 40 metra dýpi úti fyrir Lofoten frá því 18 júní. Norsku mengunarvarnirnar gefa enn sem komið er lítið fyrir þær áætlanir og halda fast við að dæla eigi olíunni úr skipinu og að útgerðin beri alla ábyrgð á því að það verði gert. Einu gildi þótt skipið hafi verið selt. Engu að síður er fulltrúi mengunarvarnanna nú staddur hér á landi ásamt fleiri sérfræðingum til að meta hvort áætlanir um að lyfta skipinu með olíu og fiski í séu raunhæfar. Norðmennirnir komu hingað í gær.
Ottar Longva, deildarstjóri hjá mengunarvörnunum, segir að fresturinn til að dæla olíunni úr skipinu sé liðinn það standi og enginn frekari frestur hafi verið gefinn formlega. En þrátt fyrir þetta og að útgerðin beri ábyrgð vilji norsku sérfræðingarnir fylgjast með því sem verið hér er verið að gera og hvort það sé raunhæft. Þeim athugunum þurfi að ljúka um miðja næstu viku. Teljist svo ekki vera sjá norsku mengunarvarnirnar sjálfar um að láta dæla olíunni úr skipinu á kostnað útgerðarinnar. Þegar liggja fyrir samningar við ábyggilegt fyrirtæki sem er tilbúið að taka það að sér, segir Ottar Longva í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins.