Bygg
Bygg

Fréttir

Norðaustanátt með köldu en björtu veðri
Mánudagur 22. febrúar 2010 kl. 08:17

Norðaustanátt með köldu en björtu veðri


Norðaustanáttin verður ríkjandi næstu daga með köldu en björtu veðri. Í dag verða 5-10 m/s við Faxaflóann, stöku él vestast og allt að 10 stiga frost .

Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu:
Norðaustan 5-10 og léttskýjað. Frost 0 til 7 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag:
Norðaustan 8-15 m/s. Snjókoma eða él N- og A-lands en bjart með köflum S- og V-lands. Áfram kalt í veðri.

Á föstudag:
Norðaustan- og austanátt, snjókoma S- og V-lands en úrkomuminna NA-til. Frost 0 til 10 gráður, minnst við suðurströndina.

Bílakjarninn
Bílakjarninn