HSS
HSS

Fréttir

  • Nokkuð rólegt hjá Póstinum á Þorláksmessu
    Um 500 pakkar koma til Póstsins í Reykjanesbæ dag hvern.
  • Nokkuð rólegt hjá Póstinum á Þorláksmessu
    Anna María Guðmundsdóttir, svæðisstjóri hjá Póstinum.
Miðvikudagur 23. desember 2015 kl. 14:20

Nokkuð rólegt hjá Póstinum á Þorláksmessu

- Innlend netverslun eykst mikið

Miklar annir hafa verið hjá starfsmönnum Póstsins á Suðurnesjum í desember. Dagurinn í dag, Þorláksmessa, er sá fyrsti síðan 10. desember sem nokkuð rólegt er á starfsstöð Póstsins í Reykjanesbæ. „Það er yfirleitt þannig á Þorláksmessu að þá er tími fyrir kaffi og konfekt,“ segir Anna María Guðmundsdóttir, svæðisstjóri hjá Póstinum. 
 
Desember er mesti annatíminn hjá Póstinum og vinnudagarnir því langir. Starfsmennirnir í desember hafa verið 32. Hjá póstinum vinnur ungt fólk í hlutastarfi yfir allt árið og um jólin vinna þau svo meira. Á Suðurnesjum eru yfir 8.000 bréfalúgur svo handtökin eru ótal mörg yfir mesta annatímann.
 
Anna segir það tilfinningu sína að jólakortunum sé alltaf að fækka en pakkasendingum að fjölga. „Það er þó erfitt að segja með jólakortin fyrr en sölutölur frímerkja eru skoðaðar. Unga fólkið í dag gerir minna af því nú en áður að senda jólakort.“ Anna segir jólakortasendingarnar hafa dreifst yfir lengri tíma eftir að B frímerki komu til sögunnar. „Þá fór fólk að senda kortin fyrr. Hérna í gamla daga vildi fólk helst senda þau rétt fyrir jól en nú byrjar fólk að senda fljótlega eftir 10. desember. Þess vegna finnst manni kortin vera færri núna því þau koma inn yfir lengri tíma og því er auðveldara að afgreiða þau.“
 
Anna segir innlenda netverslun hafa aukist mikið. „Hingað til okkar koma um 500 pakkar á dag og ég hugsa að uppistaðan sé vörur sem keyptar eru í netverslun. Það er þannig alla daga ársins að mikið komi af pökkum og þessi aukning í innlendri netverslun er ekki aðeins hér á Suðurnesjum heldur um allt land.“ 
 
 
Soffía Pétursdóttir hjá Póstinum í Reykjanesbæ.
 
 
Henný Rósa Aðalsteinsdóttir í óða önn að raða pósti.
Bílakjarninn
Bílakjarninn