Bygg
Bygg

Fréttir

Nokkuð hvasst og skúrir á morgun
Þriðjudagur 23. janúar 2007 kl. 08:32

Nokkuð hvasst og skúrir á morgun

Klukkan 6 var vestlæg átt á landinu, 8-13 m/s víðast hvar, en 15-22 á nyrstu annesjum og allra syðst. Skýjað um allt land og smáskúrir vestantil. Hiti 1 til 7 stig, svalast á Brú á Jökuldal en hlýjast í Súðavík.
 
 
---------- Veðrið 23.01.2007 kl.06 ----------
   Reykjavík      Skúrir                    
   Stykkishólmur  Alskýjað                  
   Bolungarvík    Skýjað                    
   Akureyri       Skýjað                    
   Egilsst.flugv. Alskýjað                  
   Kirkjubæjarkl. Skýjað                    
   Stórhöfði      Rigning                   

Yfirlit
Um 800 km S af Vestamannaeyjum er víðáttumikil 1045 mb hæð, en yfir NA-strönd Grænlands er heldur vaxandi 1015 mb lægðardrag.


Veðurhorfur á landinu ásamt viðvörun !
Veðurhorfur til kl. 18 á morgun: Viðvörun: Búist er við stormi á annesjum norðanlands og á Miðhálendinu. Veðurspá: Vestanátt, 13-23 m/s, hvassast á annesjum norðanlands, en einnig má búast við hvössum vindhviðum á Austur- og Suðausturlandi. Smávæta með köflum vestantil en annars skýjað með köflum. Svipað veður á morgun. Hiti 2 til 10 stig.

 

Veðurhorfur við Faxaflóa næsta sólarhringinn:
Vestan 10-15 en suðvestan 8-13 á morgun. Smáskúrir. Hiti 2 til 8 stig.

Bílakjarninn
Bílakjarninn