Nokkrir stöðvaðir fyrir hraðakstur um helgina

Í gær hafði lögreglan afskipti af tólf ökumönnum vegna umferðarlagabrota. Þrír voru ekki með öryggisbelti spennt, einn var að tala í farsíma án þess að nota handfrjálsan búnað. Átta voru stöðvaðir vegna hraðaksturs. Sá sem hraðast ók mældist á 122 km hraða á Grindavíkurvegi þar sem hámarkshraði er 90 km.