Fréttir

Njarðvíkurskóli framlengir samning við Björgunarsveitina Suðurnes
Sunnudagur 28. maí 2017 kl. 06:00

Njarðvíkurskóli framlengir samning við Björgunarsveitina Suðurnes

-Samið til tveggja ára

Síðustu ár hefur Njarðvíkurskóli í samstarfi við Björgunarsveitina Suðurnes boðið nemendum í 9. og 10. bekk upp á valgreinina Unglingadeildin Klettur.  Nemendur sækja þá þjálfun hjá unglingadeildinni og fá það metið sem val í skólanum.  Samstarfið hefur gengið mjög vel og í síðustu viku var skrifað undir nýjan samstarfssamning til tveggja ára.   Markmið samstarfsins er meðal annars að efna tengsl skóla og björgunarsveitar og hvetja nemendur til þátttöku í starfi björgunarsveita.  Á myndinni má sjá Guðna og Þorgerði fulltrúa frá Björgunarsveitinni Suðurnes við undirskriftina.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024