Níunda kennsluvél Keilis
Flugakademía Keilis hefur fengið nýja DA40 kennsluvél frá austurríska flugvélaframleiðandanum Diamond og lenti vélin á Keflavíkurflugvelli rétt eftir hádegi í gær, sunnudaginn 6. mars. Fyrir hefur skólinn yfir að ráða átta flugvélar frá Diamond, fimm tveggja sæta DA20, tvær fjögurra sæta DA40 og eina tveggja hreyfla DA42.
Nýja vélin hefur fengið auðkennisstafina TF-KFH og er með tæknivæddustu kennsluvélum á landinu, búin fullkomnum blindflugsbúnaði, stórum tölvuskjám og nútíma flugmælitækjum, sjálfstýringu og veðursjá. Magnús Þormar, flugkennari hjá Keili, tók við flugvélinni í Diamond verksmiðjunni í Austurríki 3. mars síðastliðinn.
Floti kennsluvéla Flugakademíu Keilis er orðinn einn sá nýstárlegasti og yngsti í Evrópu, og er nýjustu vélinni ætlað að bregðast við aukinni eftirspurn eftir flugnámi við skólann. Þá tók skólinn einnig í notkun fullkominn flughermi á síðasta ári að gerðinni Redbird en um er að ræða hreyfanlegan hátækni flughermi sem þýður uppá fjölbreytta notkunarmöguleika í þjálfun flugnemenda skólans.
Tæknivæddustu kennsluvélar á landinu
Nú stunda hátt í tvö hundruð nemendur flugtengt nám við Keili, þar á meðal atvinnuflugmannsnám og flugvirkjanám. Flugakademía Keilis býður bæði upp á samtvinnað atvinnuflugmannsnám (sameinað einka- og atvinnuflugmannsnám) og ATPL nám, og eru teknir inn nýir nemendur í námið þrisvar á ári, í janúar, maí og ágúst. Fullskipað er í atvinnuflugmannsnám í vetur en næst verður tekið við nemendum maí. Vegna mikillar aðsóknar í flugnám hjá Flugakademíu Keilis er áhugasömum bent á að senda inn námsumsókn sem fyrst. Nánari upplýsingar um Flugakademíu Keilis má nálgast á www.flugakademia.is