HSS
HSS

Fréttir

Níu teknir fyrir hraðakstur í umferðarátaki lögreglu
Fimmtudagur 22. maí 2008 kl. 09:54

Níu teknir fyrir hraðakstur í umferðarátaki lögreglu

Sérstakt umferðarátak hófst hjá lögreglunni á Suðurnesjum í gær sem standa mun yfir til septemberloka. Eftirlitið er kostað af Umferðarstofu en gert er ráð fyrir 4,5 milljónum króna til Suðurnesja. Átakið felst í auknu hraðaeftirliti í umdæminu með sérstaka áherslu á svokallaða svarta kafla, þar sem slys hafa verið tíð og hámarkshraði verið lækkaður eins og á Reykjanesbrautinni vegna framkvæmda. Fylgst er með gatnamótum þar sem stöðvunarskylda er. Einnig verður tekið á öðrum umferðarmálum eins og frágangi á farmi, búnaði eftirvanga og fl. Eftirlitinu er sinnt sex daga vikunnar átta tíma í senn og á þremur tímabilum misjafnt á milli daga, segir í tilkynningu frá lögreglunni.

Átta ökumenn voru teknir fyrsta daginn í umferðarátakinu fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni í gær. Sá er hraðast ók var á 127 km/klst. þar sem hámarkshraðinn er 90 km/klst.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Þá var ökumaður sviptur ökuréttindum á staðnum eftir að hafa mælst á 64 km/klst. á Norðurvöllum í Reykjanesbæ, þar sem hámarkshraðinn er 30 km/klst.