Níu teknir fyrir hraðakstur

Sá er hraðast ók mældist á 132 km/klst þar sem leyfilegur hámarkshraði er 90 km. Annar var tekinn á 112 km þar sem leyfilegur hámarkshraði er 50 km. Sá var færður til lögreglustöðvar þar sem hann var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða.
Tveir ökumenn voru kærðir fyrir að stöðva ekki við stöðvunarskyldu.