Miðvikudagur 23. júní 2004 kl. 14:21
Níu ökumenn kærðir í gær

Níu ökumenn voru kærðir fyrir of hraðann akstur á Suðurnesjum í gær. Sjö voru stöðvaðir á Reykjanesbraut, einn á Njarðarbraut og einn á Garðskagavegi. Sá sem hraðast fór var á 134 km hraða á Reykjanesbraut.
Einn ökumaður var kærður fyrir að mæta ekki með bifreið sín til skoðunar á réttum tíma.
Eitt hávaðaútkall barst vegna hávaða frá fólki í stigagangi í fjölbýlishúsi.