Laugardagur 26. maí 2007 kl. 10:18
Níu kærðir fyrir umferðarlagabrot

Níu ökumenn voru kærðir fyrir umferðarlagabrot í gærdag í umdæmi Lögreglunnar á Suðurnesjum. Þrír voru kærðir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbraut og jafnmargir á Grindavíkurvegi. Sá sem hraðast ók var á 141 km hraða þar sem leyfilegur hámarksharði er 90 km. Þá var einn ökumaður kærður fyrir að vera ekki í bílbelti og annar fyrir að virða ekki stöðvunarskyldu.
Þá var ökumaður vörubifreiðar kærður fyrir að aka með vörulyftu í láréttri stöðu eftir Reykjanesbraut. Slíkt háttarlag skapar mjög mikla hættu í umferðinni.