Níræður ökumaður ölvaður undir stýri
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði bifreið í umdæminuþar sem grunur lék á að ökumaðurinn væri ölvaður.
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði bifreið í umdæminu í gær, þar sem grunur lék á að ökumaðurinn væri ölvaður. Lögreglumenn voru við umferðareftirlit þegar sást til bílsins sem ekið var yfir á öfugan vegarhelming, þannig að bifreið sem kom úr gagnstæðri átt þurfti að hægja á sér og víkja. Ökumaðurinn, tæplega níræður karlmaður, reyndist vera ölvaður. Hann var handtekinn og færður á lögreglustöð þar sem hann var sviptur ökuréttindum.