Niðurstöður rannsóknar um nýsköpun og frumkvöðlaumhverfi
-Kynntar á haustfundi Heklunnar
Haustfundur Heklunnar verður haldinn í Bergi Hljómahöll á morgun, föstudaginn 27. október en þar verður fjallað um nýsköpunarumhverfið á Suðurnesjum.
Kynntar verða niðurstöður rannsóknar um nýsköpun og frumkvöðlaumhverfi á Suðurnesjum auk þess sem stuðningsumhverfið verður skoðað og má þar nefna fjárfestingar og styrktarsjóði.
Fundarstjóri er Guðný María Jóhannsdóttir en fundurinn er öllum opinn. Beint streymi verður af fundinum fyrir þá sem eiga ekki heimangengt. Fundurinn hefst með léttum hádegisverði kl. 11:30 og stendur dagskrá frá 12 til 13:30.