HSS
HSS

Fréttir

Niðurstöður prófkjörsins gefa ekki rétta mynd
Þórarinn Gunnarsson var kosinn nýr formaður Heimis.
Mánudagur 10. mars 2014 kl. 10:02

Niðurstöður prófkjörsins gefa ekki rétta mynd

- af samsetningu bæjarbúa

Aðalfundur Heimis, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ, var haldinn mánudaginn 3. mars.

Fráfarandi formaður Hildur Gunnarsdóttir fór yfir skýrslu stjórnar og lagði fram reikninga. Að því loknu var kosið um nýjan formann Heimis og var Þórarinn Gunnarsson kosinn nýr formaður. Ásamt honum voru eftirtaldir kosnir í stjórn: Alexandra Herbertsdóttir, Eyjólfur Ben Erlingsson, Gígja Sigríður Guðjónsdóttir, Ingólfur Ólafsson, Ísak Ernir Kristinsson, Kristín Sigurðardóttir, Ólafur Ingvi Hansson, Ólöf Birna Jónsdóttir, Sigríður Sanders og Sigrún Björnsdóttir.

Stjórn Heimis, félags ungra Sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ, ályktar svohljóðandi um niðurstöður prófkjörs:

Heimir óskar sitjandi bæjarfulltrúum til hamingju með úrslit prófkjörsins. Þó Skorar stjórn Heimis á kjörstjórn að gera breytingar á uppröðun lista sjálfstæðismanna, af tveim ástæðum.

I. Við teljum að niðurstöður prófkjörsins gefi ekki rétta mynd af samsetningu bæjarbúa. Yngsti frambjóðandi efstu sjö sæta er á 45. ári. Þessu til stuðnings er rúmlega 38% kjósenda í komandi kosningum á aldrinum 18-35 ára. Telur stjórn Heimis að kjörstórn eigi að setja fulltrúa ungs fólks á lista sjö efstu.

II. Stjórn Heimis telur að gæta þurfi að hlutfalli kynjanna á lista Sjálfstæðisflokksins. Stjórn Heimis skorar á kjörstjórn að huga vel að kynjahlutfalli við uppröðun á lista, aftur til þess að listinn gefi rétta mynd af samsetningu bæjarbúa.

Bílakjarninn
Bílakjarninn