Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Neyðarstjórn HS Veitna hefur verið virkjuð
Þriðjudagur 31. október 2023 kl. 13:13

Neyðarstjórn HS Veitna hefur verið virkjuð

– til að yfirfara viðbragðsáætlanir

Neyðarstjórn HS Veitna hefur verið virkjuð til að yfirfara viðbragðsáætlanir og fyrirtækið er í samstarfi við almannavarnir, HS Orku og fleiri aðila vegna mögulegra áhrifa á þjónustu fyrirtækisins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HS Veitum.

Óvissustigi almannavarna hefur verið lýst yfir vegna jarðhræringa á Reykjanesi. Landris hófst á föstudaginn 27. október nærri Svartsengi og virðist landið rísa mun hraðar en áður þó dregið hafi úr því. Er þetta í fimmta sinn sem landris mælist norðvestan við Þorbjörn á Reykjanesskaga síðan árið 2020. Landris á sér einnig stað undir Fagradalsfjalli og líkur eru taldar á eldgosi einhvers staðar á þessu svæði, þó ekki liggi fyrir hvenær það gerist.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Heita vatnið sem HS Veitur dreifa til viðskiptavina kemur frá HS Orku í Svartsengi og megnið af kalda vatninu kemur frá Lágum, sem eru mitt á milli Svartsengis og Fitja. Raforkan kemur yfir flutningskerfi Landsnets frá Svartsengi, Reykjanesvirkjun og Suðurnesjalínu. Eldgos eða hraunrennsli á óheppilegum stað getur haft veruleg áhrif á afhendingu þessara nauðsynlegu lífsgæða og því verður það samstarfsverkefni þessara fyrirtækja auk almannavarna að halda þessari grunnþjónustu gangandi eins og mögulegt er. Síðustu eldgos á Reykjanesi hafa hins vegar ekki haft nein áhrif á þjónustu HS Veitna.

HS Veitur eru í viðbragðsstöðu og munu leita leiða til að takmarka áhrif á notendur eins og nokkur er kostur. Fyrirtækið mun upplýsa viðskiptavini verði einhverjar breytingar á stöðunni, segir á vef fyrirtækisins.