HSS
HSS

Fréttir

Neyðarlínan tekur yfir símsvörun á nóttunni en læknisþjónusta óbreytt
Sunnudagur 29. janúar 2012 kl. 20:45

Neyðarlínan tekur yfir símsvörun á nóttunni en læknisþjónusta óbreytt


Frá og með 1. febrúar nk. breytist opnunartími í móttöku og afgreiðslu Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Fram til þessa hefur móttakan verið opin allan sólarhringinn en frá og með 1. febrúar verður móttakan opin alla virka daga frá kl. 07.30 – kl. 20.00. Móttakan er opin allar helgar og helgidaga frá kl. 10.00 - kl. 19.00. Áfram er tekið er á móti neyðartilfellum allan sólarhringinn.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Öll starfsemi heilsugæslunnar og sjúkrahússins er óbreytt. Vaktlæknir er í húsinu allan sólarhringinn. Einnig verður vakthjúkrunarfræðingur í húsinu til kl. 21.30 alla virka daga. Fólk er beðið um að hringja í 112 ef það þarf á læknisaðstoð að halda utan opnunartíma.

Ef um neyðartilfelli er að ræða og fólk er komið að húsnæði Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja og er ekki með síma meðferðis, þá má hringja á dyrabjöllu Legudeildar/Ljósmæðravaktar. Bjallan hefur verið sett upp við inngang elstu byggingar sjúkrahússins/sjúkrabifreiðarinngang.



Milliliðum að bráðþjónustu fækkað

„Við erum í raun og veru að gera þær breytingar að við erum að sleppa konunni sem verið hefur í afgreiðslunni á nóttunni og verið tengiliður íbúanna við deildirnar og vaktlækni. Þá hefur hún einnig verið tengiliður vegna viðbragðsáætlunar almannavarna. Það er verið að leggja niður þessa vakt og loka skiptiborðinu á kvöldin og um nætur en önnur þjónusta breytist ekki neitt. Með þessari breytingu erum við að stytta og einfalda boðleiðir. Nú hefur fólk samband við 112 og Neyðarlínan er beintengd við vaktlækninn og gefur samband við hann,“ segir Þórunn Benediktsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í samtali við Víkurfréttir.


Í takt við tímann

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hefur til langs tíma verið eina heilbrigðisstofnunin með sólarhringsvakt í móttöku utan Landsspítalans í Reykjavík. Aðrar heilbrigðisstofnanir hafa verið með það fyrirkomulag sem nú er verið að taka upp hér, að Neyðarlínan annast símsvörun eftir lokun afgreiðslunnar.


Snorri Björnsson, yfirlæknir heilsugæslu HSS, segir í samtali við Víkurfréttir að þrír til fimm einstaklingar séu að koma á HSS milli kl. 23:00 til 08:00 virka daga en aðeins fleiri um helgar. Í sumum tilvikum eru þau tilvik sem koma upp þess eðlis að þau mega bíða þar til daginn eftir. Starfsmanni í móttöku er hins vegar ófær um að meta ástand þeirra sem koma. Því mun nýja fyrirkomulagið þar sem 112 tekur við símtalinu og gefur svo beint samband á vaktlækni eiga eftir að vera til bóta. Nýja fyrirkomulagið á einnig eftir að stytta boðleiðir í samskiptum lækna á HSS og sjúkraflutninga- og lögreglumanna.


Heimsóknir aðstandenda á Legudeild og Ljósmæðravakt
Lokun á móttöku Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja mun hafa áhrif á heimsóknir aðstandenda á Legudeild stofnunarinnar á þann hátt að aðgengi aðstandenda eftir lokun afgreiðslu verður við inngang elstu byggingar sjúkrahússins/sjúkrabifreiðarinngang. Þar verður dyrabjalla svo fólk geti gert starfsfólkinu viðvart um komu sína. Þórunn leggur á það áherslu að helst séu það aðstandendur deyjandi sjúklinga sem séu að koma og fara á öllum tímum sólarhrings. Húsinu sé ekki lokað fyrir þessu fólki en aðstandendur eiga að vera í sambandi við starfsfólk Legudeildar varðandi komur sínar. Sama á við um það fólk sem þarf að komast á Ljósmæðravaktina (fæðingardeildina) utan hefðbundins opnunartíma.


Þau Þórunn og Snorri leggja áherslu á að á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja er rekin slysa- og neyðarvakt allan sólarhringinn. Það er því engin ástæða til að óttast að fólk í neyð komist ekki undir læknishendur þó svo að skiptiborðið sé lokað að næturþeli.


Myndin:
Snorri Björnsson yfirlæknir heilsugæslu HSS og Þórunn Benediktsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja framan við innganginn á A-álmunni þar sem sett verður upp dyrasímakerfi þar sem ná má sambandi við vaktlækna.