HSS
HSS

Fréttir

  • Neyðarkallinn seldur um helgina
  • Neyðarkallinn seldur um helgina
Fimmtudagur 5. nóvember 2015 kl. 15:37

Neyðarkallinn seldur um helgina

Nú um helgina munu sjálfboðaliðar björgunarsveita vera á ferðinni og selja Neyðarkall björgunarsveita. Er þetta 10. árið sem farið er í slíka fjáröflun og er hún nú orðin ein af mikilvægustu stoðum undir starf björgunarsveita landsins.
 
Formleg sala Neyðarkalls björgunarsveita hefst í dag. Í ár verður þess m.a. minnst að 20 ár eru síðan mannskæð snjóflóð féllu á Súðavík og Flateyri. Voru þeir atburðir meðal þeirra stærstu sem björgunarsveitir hafa tekist á við.
 
Sóley Eiríksdóttir, sem var 11 ára þegar snjóflóðið féll á Flateyri og var bjargað úr því eftir níu tíma, og Jón Svanberg Hjartarson, sem var lögreglumaður á staðnum og stýrði aðgerðum fyrstu klukkkustundirnar eftir að flóðið féll, munu selja fyrstu Neyðarkallana í ár. Jón Svanberg er í dag framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins Landsbjargar.
 
Neyðarkall björgunarsveita í ár er úr bílaflokki björgunarsveitar. Mikið mæddi á bílaflokkum sveita síðast vetur, og þá sérstaklega þeim er búa við fjallvegi og heiðar sem teppast fljótt þegar snjóar. Margar slíkar björgunarsveitir eru litlar og tiltölulega fáir einstaklingar sem sinna útköllunum og því mikið álag á þeim.
 
Við hvetjum landsmenn til að taka vel á móti Neyðarkalli björgunarsveita og styrkja sína sveit til góðra verka samfélaginu til heilla, segir í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn