Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Nettó með árangursríkustu markaðsherferð ársins
Hreiðar Þór Jóns­son formaður ÁRU dóm­nefnd­ar, Hall­ur Geir Heiðars­son rekstrarstjóri Nettó, Ingi­björg Ásta Hall­dórs­dótt­ir markaðsstjóri Samkaupa og Ólaf­ur El­ín­ar­son sviðsstjóri markaðsrann­sókna hjá Gallup.
Mánudagur 11. mars 2019 kl. 15:09

Nettó með árangursríkustu markaðsherferð ársins

Kynningarherferð Nettó á netinu hlaut á föstudag Áruna, verðlaun ÍMARK fyr­ir ár­ang­urs­rík­ustu markaðsher­ferð árs­ins. Þar með var brotið blað í sögu ÍMARK, en aldrei áður hefur matvöruverslun hlotið árangursverðlaunin.

ÁRAN er sem áður segir, verðlaun sem veitt eru fyr­ir ár­ang­urs­rík­ustu markaðsher­ferð ársins 2018 og var herferðin unnin í samstarfi við auglýsingastofuna H:N markaðssam­skipti.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

„Við hjá Nettó/Sam­kaup­um erum afar stolt af þess­ari viður­kenn­ingu. Þetta er í fyrsta skipti sem versl­un á mat­vörumarkaði hlýt­ur þessi verðlaun og er þetta okk­ur ómet­an­leg hvatn­ing í þeim skemmti­legu verk­efn­um og áskor­un­um sem framund­an eru,“ seg­ir Ingi­björg Ásta Hall­dórs­dótt­ir, markaðsstjóri Sam­kaupa. 

„Tilgangur herferðarinnar var að vekja athygli á þessari nýjung á markaði en áður en við fórum af stað var ekki fordæmi fyrir lágvöruverðsverslun á matvövöru á netinu hér á landi. Herferðin endurspeglar þétt samspil endurmörkunar Nettó vörumerkisins, hefðbundinna auglýsinga og óhefðbundinna, svo sem almannatengsla og nýtingu samfélagsmiðla, auk nákvæmra mælinga yfir tímabilið sem gerir það að verkum að okkur hefur tekist að bæta okkur á réttu stöðunum.”

Áran hefur alls verið veitt 11 sinnum og er verðlaununum ætlað að beina sjónum að herferðum sem skilað hafa framúrskarandi árangri. Þetta er í sjöunda skiptið sem H:N Markaðssamskipti hlýtur Áruna.