Netkosning fyrir Ljósalagskeppnina
Sú nýbreytni verður á fyrirkomulagi Ljósalagskeppninnar í ár að almenningi gefst kostur á að hlusta á lögin á vefsíðunni tonlist.is og greiða því lagi sem þeim finnst best atkvæði sitt.
Vægi atkvæðanna er 25% á móti 25% í sal í Stapanum og 50% dómnefndar og stendur atkvæðagreiðsla allt fram á föstudaginn næstkomandi.
Þá er geisladiskurinn með lögunum í Ljósalagskeppninni 2004 er væntanlegur í verslanir á næstu dögum.
Þar má heyra færustu söngvara og tónlistarmenn landsins flytja lög ýmissa tónlistarmanna. Á meðal flytjenda eru t.d. Hreimur úr Landi og Sonum, Ardís sem gerði garðinn frægan í Idol-Stjörnuleit og sjálfur Helgi Björnsson.
Keppnin sjálf fer fram í Stapa föstudaginn 20. ágúst næstkomandi. Þar verður boðið upp á skemmtilega dagskrá og glæsilega þriggja rétta máltíð.
Smellið hér til að fara á tonlist.is og kjósa Ljósalagið