Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Netárás á vef Isavia í morgun
Miðvikudagur 17. maí 2023 kl. 12:01

Netárás á vef Isavia í morgun

Netárás var gerð í morgun á vefsíðu Isavia, sem birtir flugupplýsingar fyrir alla íslenska áætlunarflugvelli. Síðan lá niðri í um það bil tvær klukkustundir. Um var að ræða svokallaða DDoS árás. Þá er framkölluð umferð á vefsíðuna með þúsundum sýndarnotenda til að gera hana óvirkar. Tæknimönnum tókst að verjast árásinni og koma síðunni aftur upp. Þó getur það tekið lengri tíma fyrir einhverja notendur að komast inn á vefinn.

Um leið og netárásin var gerð var varasíða með aðgengi að flugupplýsingum um Keflavíkurflugvöll opnuð og vísað á hana á samfélagsmiðlum félagsins. Þá var hægt að nálgast upplýsingar um innanlandsflug á vef Textavarpsins og flugfélaganna og var einnig vísað þangað á samfélagsmiðlum innanlandsflugvalla.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024