HSS
HSS

Fréttir

Nesvellir: 54 þúsund fermetrar í 10-12 milljarða króna framvæmd
Þriðjudagur 21. mars 2006 kl. 10:10

Nesvellir: 54 þúsund fermetrar í 10-12 milljarða króna framvæmd

Ráðgert er að framkvæmdir við Nesvelli, miðstöð eldri borgara á Suðurnesjum, hefjist núna á vordögum. Skipulagsvinnu er að mestu lokið en samkvæmt deiliskipulagi er um að ræða byggingar upp á 54,200 fermetra. Reiknað er með að heildar byggingarkostnaður verði á bilinu 10 - 12 milljarðar, þannig að hér er um gríðarstóra framkvæmd að ræða.

Búið er að skipuleggja íþróttasvæðið á milli félagsheimilisins Stapa og verslun Samkaupa undir fyrirhugað svæði Nesvalla og verður íþróttasvæðinu fundin önnur staðsetning. Fyrirhugað er að taka fyrsta áfanga í notkun haustið 2007. Er þá talað um hjúkrunarheimilið ásamt þjónustumiðstöð og hluta svokallaðra öryggisíbúða. Hjúkrunarheimilið verður á þremur hæðum, alls 90 herbergi eða 7,500 fermetrar í það heila. Þjónustumiðstöðin telur alls 3000 fermetra en ráðgert er að öryggisíbúðir verði 83 á 4 hæðum, alls 11.000 fermetrar. Samkvæmt heimildum blaðsins standa yfir samningaumleitanir við heibrigðisyfirvöld vegna reksturs hjúkrunarheimilsins og eru þær viðræður helsti flöskuhálsinn í ferlinu þar sem yfirvöld halda fast um budduna þegar kemur að því að ræða rekstrarkostnað við slíkt heimili.
Reiknað með að íbúðir í fjölbýli verði 222 talsins eða alls 27,700 fermetrar og íbúðir í raðhúsum verði 48 eða 5000 fermetrar. Alls er því um að ræða 54,200 fermetra í það heila sem þessi framkvæmd nær yfir. Gert er ráð fyrir ýmiskonar tómstundaaðstöðu og vistlegum útisvæðum þar sem m.a. verður veglegur púttvöllur og upphitaðar gönguleiðir. Áætlað er að byggingarframkvæmdum verði endanlega lokið árið 2011.

Mynd: Á þessari afstöðumynd sést yfir Nesvelli, miðstöð eldri borgara. Eins og sjá má munu fjölmargar byggingar rísa á svæðinu.
Bílakjarninn
Bílakjarninn