Bygg
Bygg

Fréttir

Nesfiskur kaupir Ný-Fisk
Þriðjudagur 13. desember 2016 kl. 09:55

Nesfiskur kaupir Ný-Fisk

Samið hefur verið um kaup Nesfisks í Garði á Ný-Fiski í Sandgerði, dótturfélagi Icelandic Group. Vörumerkið „Icelandic Seafood“ fylgdi ekki með í kaupunum. Ný-Fiskur hefur sérhæft sig í sölu á ferskum sjávarafurðum. Stór hluti framleiðslunnar er fluttur til viðskiptavina í Belgíu og víðar í Evrópu. Ný-Fiskur rekur vinnslu í Sandgerði og gerir út línubátinn Von GK-113 í gegnum dótturfélag sitt, Útgerðarfélag Sandgerðis. Um 70 manns starfa hjá fyrirtækinu.

Nesfiskur ehf. rekur frystingu, ferskfiskvinnslu, saltfiskverkun, skreiða- og hausaþurrkun í Garði. Þá er fyrirtækið með einn frystitogara, tvo ísfisktogara, fjóra snurvoðarbáta og tvo línabáta. Í Sandgerði er fyrirtækið með frystingu og ferskfiskvinnslu. 

Bílakjarninn
Bílakjarninn