Nesfiskur byggir stórhýsi í Gerðum
Bragi Guðmundsson byggingaverktaki í Garði hefur í nógu að snúast. Undanfarna mánuði hefur hann verið að byggja 1500 fermetra stórhýsi á þremur hæðum í Gerðum fyrir Nesfisk. Á nýju ári mun Bragi svo fara með sinn mannskap í íþróttamiðstöðina í Garði þar sem byggð verður ný hæð með fullkominni líkamsrækt.
Verktakafyrirtæki Braga veitir tólf manns atvinnu og verkefnin hafa verið næg. Byggingin sem nú rís í Gerðum er nokkuð flókin framkvæmd að sögn Braga. Á jarðhæðinni verður innkoma í fyrirtækið, búningsklefar starfsfólks, sturtur og hreinlætisaðstaða. Á annarri hæð verður fullkomið mötuneyti og kaffistofa starfsfólks. Skrifstofur Nesfisks verða svo á þriðju hæðinni.
Nú er verið að skoða þann möguleika að byggja 150 fermetra sal á þaki hússins en það yrði þá fjórða hæðin. Bragi segir útsýnið ofan af byggingunni vera hreint magnað yfir byggðina í Garði og yfir flóann.
Þessi 1500 fermetra bygging er ekki það eina sem Bragi hefur byggt fyrir Nesfisk því á síðasta ári lauk hann við að byggja húsnæði yfir kæli og lausfrysti.
Á nýju ári verður svo byggt við íþróttamiðstöðina eins og áður segir en það verkefni hefst í lok febrúar og á að vera lokið næsta haust.
(Úr blaðinu SUÐUR MEÐ SJÓ sem fylgdi Víkurfréttum 19. desember sl.)