Nenntu ekki að labba of langt í boltaleikinn
Sl. miðvikudagskvöld höfðu lögreglumenn afskipti af nokkrum piltum sem höfðu lagt bifreiðum sínum á lóðinni við Grindavíkurskóla. Piltarnir voru í boltaleik. Piltarnir tóku vel í ábendingar lögreglumanna um að leggja bifreiðum sínum í bifreiðastæðum og færðu þeir þær strax.Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar í Keflavík.