Bygg
Bygg

Fréttir

Nemendur stofna námsklúbb
Þriðjudagur 3. febrúar 2004 kl. 18:05

Nemendur stofna námsklúbb

Framtakssamir nemendur í 10. bekk Holtaskóla hafa tekið höndum saman og stofnað námsklúbb með það að leiðarljósi  að vera betur í stakk búin til að takast á við samræmdu prófin í vor.  Nú þegar hafa 20 nemendur skráð sig í klúbbinn og foreldrar þessara nemenda hafa ákveðið að styðja vel við bakið á þeim. Nemendurnir fá aðstöðu í K húsinu við Hringbraut  og munu hittast þar tvisvar í viku undir handleiðslu foreldra.

Markmið námsklúbbsins er að hefja undirbúning fyrir samræmdu prófin í tíma, auka samvinnu og hópavinnu, læra skipulögð vinnubrögð, miðla þekkingu og upplýsingum. Einnig er markmiðið að kenna verkaskiptingu og að krakkarnir finni hvar þau standi í hverri námsgrein, auk þess að skapa umræður um námsefnið, skapa gott fordæmi fyrir yngri nemendur, efla jákvæð viðhorf til námsins og slá á prófkvíða.

Nemendurnir vinna verkefnin í hópum undir stjórn hópstjóra sem er einn úr hópnum. Gert er ráð fyrir að nemendur miðli sín á milli, innan hvers hóps og á milli hópa, og aðstoði hvert annað eftir þörfum. Hóparnir njóta aðstoðar kennara í viðkomandi fögum. Fyrstu þrjár vikurnar mun hópurinn einbeita sér að stærðfræði og íslensku. Í kjölfarið mun hópurinn vinna sameiginlega að því að leysa samræmd próf í hverju fagi frá árinu 1999 til 2003 þannig að þau átti sig betur á umfangi þess námsefnis sem þau eiga að kunna skil á fyrir prófin í vor.

Ingibjörg Þorsteinsdóttir er ein þeirra sem tekur þátt í námshópnum, en hún er hópstjóri yfir sínum hóp sem er þessa dagana að læra stærðfræði. Ingibjörg segist lítast mjög vel á hópinn og samstarfið. „Auðvitað getur þetta verið þurr lærdómur, en maður hittir krakkanna og það gerir þetta skemmtilegra. Núna erum við að læra stærðfræði og síðan förum við í íslensku. Það sem er líka svo gott við þetta er að maður veit hvernig samræmdu prófin eru uppbyggð og þannig losnar maður við prófkvíða. Maður finnur líka fljótt í hvaða námsgreinum maður þarf að bæta sig,“ sagði Ingibjörg í samtali við Víkurfréttir.

Helga Margrét Guðmundsdóttir foreldri er í undirbúningsnefnd foreldra og segir hún að hugmyndin sé komin frá krökkunum sjálfum og hafi komið upp þegar þau fóru að huga að undirbúningi fyrir samræmdu prófin. „Þau byrjuðu nokkur að ræða þessa hugmynd en ákváðu síðan að bjóða öllum sem vildu að vera með í hópnum,“ segir Helga Margrét en stuðningur foreldra og skólayfirvalda í Holtaskóla hefur verið námshópnum mikil hvatning.
Að sögn Helgu Margrétar hafa foreldrar mikinn áhuga á starfi nemendanna og þeir eru ákveðnir í að styðja dyggilega við bakið á hópnum, en tveir foreldrar eru með krökkunum þegar þau læra saman í K-húsinu. „Á milli þess sem þau læra saman í K-húsinu hittast þau heima hjá hvor öðru til að læra, auk þess sem þau nota eyður í skólanum til að læra. Verkefnið felst aðallega í samvinnu krakkanna og að þau finni út hvar þau standa í hverri námsgrein fyrir sig.“
Helga segist vona að framtakið verði gott fordæmi fyrir krakka í 9. bekk því þetta skapi jákvæðni gagnvart náminu. „Nú er það ekki lengur hallærislegt þegar krakkarnir tala saman um námið og hvar þau séu stödd.  Hugmyndin er frá krökkunum sjálfum, við foreldrar styðjum hópinn og skólinn er mjög jákvæður gagnvart þessu. Hugurinn ber okkur hálfa leið og á því byggist þetta.“

VF-ljósmynd/Héðinn Eiríksson: Námshópurinn samankominn í K-húsinu við Hringbraut þar sem þau læra saman.
Efri röð: Viðar, Ingibjörg, Árni, Brynjar, Sunna, Aníta, Kolbrún, Inga, Sigrún, Fannar, Hrönn, Sólveig, Ragnheiður og Bjarni.
Neðri röð: Garðar, Aníta og Auður.
Bílakjarninn
Bílakjarninn