Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Nemendur Keilis vel undirbúnir fyrir háskólanám
Fimmtudagur 15. september 2011 kl. 11:08

Nemendur Keilis vel undirbúnir fyrir háskólanám

Nemendur sögðust vera misvel búnir fyrir nám í háskóla eftir því hvaða framhaldsskólum þeir komu úr, samkvæmt könnun sem Háskóli Íslands og Stúdentaráð unnu í fyrra.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Nemendur sem komu úr Menntaskólanum á Akureyri voru ánægðastir með undirbúninginn. Næstir voru nemendur Menntaskólans í Reykjavík, þá nemendur Menntaskólans við Hamrahlíð, Frumgreinadeildar Keilis og Verzlunarskóla Íslands.

Óánægðastir voru nemendur Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum, Fjölbrautaskóla Snæfellinga, Fjölbrautaskólans í Garðabæ, Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Iðnskólans í Reykjavík. Misjafnt var hversu margir nemendur úr hverjum skóla svöruðu könnuninni.

„Við erum stolt af því að vera meðal efstu skóla á Íslandi í þessu mati. Fyrrum nemendur Háskólabrúar virðast, samkvæmt þessu, telja sig fá góðan undirbúning fyrir háskólanám. Ástæða er til að óska nemendum öllum og kennurum til hamingju með þennan árangur,“ segir Hjálmar Árnason framkvæmdastjóri Keils í kjölfar þessara fregna.